Færsluflokkur: Vefurinn

Facebook | Heimasíða

Facebook | Heimasíða

Vel heppnuð lýtaaðgerð

Lýtaaðgerðin sem gerð var á Facebook í sumar er kannski fráhrindandi við fyrstu sýn (eins og fyrst þegar umbúðirnar eru teknar af sjúklingi sem fór í andlitslýtaaðgerð), en eftir þessar breytingar, hefur notagildi síðunnar stóraukist (eins og hjá fyrrnefndum sjúklingi Wink).

Þó að nýjungar þýði það, að fólk þarf að læra að nota þær, er ekki endilega þar með sagt, að þær séu af hinu illa.

Þegar ég var að nota gömlu facebook síðuna, var það orðið þannig þegar ég opnaði suma prófíla, að tölvan þyngdist öll í vinnslu, og jafnvel hökti á meðan ég reyndi að skruna niður siðuna til að sjá vegginn hjá viðkomandi. Veggurinn er það sem öllu skiptir í opinbermum samskiptum við fólk á facebook (svipað og comments á myspace), og á nýju facebook síðunni er veggurinn settur í forgang.

Eftir að ég skipti yfir í nýju facebook síðuna, hef ég verið í margfalt meira sambandi við vini mína og hef margfalt meiri yfirsýn á það sem mínir vinir eru að senda inn og bauka.

Aukinheldur mæli ég með því að taka syrpu í því að smella á "block this application" þegar þú færð boð um að "adda" einhverju applicationi. Eftir að hafa "blockað" algengustu applicationirnar, fækkar þessum requestum um allan helming, og þá er gott að búa á Facebook :-)

Ég lofa ykkur því að þessi breyting er af hinu góða. Bara að venjast viðmótinu þolinmóð. Þetta er ástæðan fyrir því að facebook er ekki að fara að breyta viðmótinu til baka. :-)

Deila á Facebook
mbl.is Andlitslyfting Facebook óvinsæl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband